Fara í yfirlit
Abdom – áfylling
Abdom – áfylling

Abdom – áfylling

15,990 ISK

Abdom styður við heilbrigða meltingu, fjölbreytta þarmaflóru og náttúrulegt jafnvægi líkamans. Þróað út frá rannsóknarvinnu og fagþekkingu Jörth á tengslum þarmaflóru, meltingar og almennrar heilsu.

Abdom inniheldur BalanceBiome™ Complex, sérhannaða blöndu af gerjaðri íslenskri broddmjólk og 19 örhjúpuðum góðgerlastofnum sem þróuð hefur verið með áherslu á náttúrulegt jafnvægi meltingarkerfisins og daglegan stuðning við þarmaflóruna.

Formúlan inniheldur 19 tegundir góðgerla og 50 milljarða CFU í dagskammti.

Meltingarvegurinn gegnir lykilhlutverki í vellíðan líkamans og hefur áhrif á meðal annars upptöku næringarefna, ónæmiskerfi og jafnvægi í líkamanum. Abdom er ætlað fyrir þau sem vilja styðja við heilbrigða meltingu og jafnvægi í þarmaflóru með reglulegum og heildrænum stuðningi.

Abdom áfylling inniheldur 60 hylki og er ætluð til áfyllingar í Abdom glerglasið. Áfyllingarumbúðirnar eru léttar og endurvinnanlegar og draga úr umbúðanotkun án þess að skerða gæði eða öryggi formúlunnar.

Byggt á rannsóknum og fagþekkingu

Sérvalin náttúruleg hráefni

Endurvinnanlegar umbúðir

Pairs well with

Nánari lýsing

Abdom – stuðningur við meltingu og örveruflóru þarmanna

Abdom er íslenskt bætiefni þróað með áherslu á meltingu og jafnvægi örveruflóru þarmanna.

Formúlan byggir á BalanceBiome™ Complex, sérhannaðri blöndu af gerjaðri íslenskri broddmjólk og 19 sérvöldum góðgerlastofnum.

Abdom er þróað út frá rannsóknarvinnu og fagþekkingu Jörth á tengslum örveruflóru þarmanna, meltingar og almennrar heilsu og er ætlað til reglulegrar notkunar.

Áfyllingin inniheldur sömu Abdom-formúlu og fæst í glerglasinu og er ætluð til áfyllingar í margnota Abdom glerglasið.

Virk innihaldsefni

BalanceBiome™ Complex:

  • Gerjuð íslensk broddmjólk (400 mg)
  • 19 sérvaldir góðgerlastofnar (200 mg)
  • 50 milljarðar lifandi góðgerla (CFU) í dagskammti (2 hylki)
Notkun

Takið 1–2 hylki daglega að morgni með vatni. Hægt er að taka formúluna á fastandi maga eða með mat.

Mælt er með að hefja notkun með 1 hylki á dag og auka síðan í 2 hylki eftir þörfum.

Áfyllingin inniheldur 60 hylki (30–60 daga skammt, fer eftir notkun).