Terms of service
Skilmálar
Almennt
JÖRTH ehf., kt. 560408-0800, framleiðir og selur bætiefni undir eigin nafni og vörumerki.
Með kaupum á jorth.is samþykkir kaupandi þessa skilmála.
Öll verð á vefsíðunni eru birt í íslenskum krónum (ISK) með virðisaukaskatti. JÖRTH áskilur sér rétt til að leiðrétta augljósar verð- og innsláttarvillur, hætta við pantanir vegna slíkra mistaka og breyta verðum án fyrirvara.
Greiðslur
Greiða má með Visa, Mastercard, Maestro, Visa Electron og Apple Pay.
Greiðsla fer fram við pöntun.
Áskrift
JÖRTH býður upp á áskrift að völdum vörum.
Viðskiptavinur velur sendingartíðni við kaup og er greiðsla innheimt sjálfkrafa fyrir hverja sendingu með því greiðslukorti sem skráð er í áskriftinni.
Áskrift er án bindingar og má breyta henni eða segja henni upp hvenær sem er í gegnum aðgang viðskiptavinar eða með því að hafa samband við JÖRTH á netfangið jorth@jorth.is.
Til að breyting eða uppsögn taki gildi fyrir næstu sendingu þarf hún að berast áður en greiðsla fyrir viðkomandi sending hefur farið fram. Eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd telst pöntunin staðfest og verður afgreidd samkvæmt gildandi skilmálum.
Um skil og endurgreiðslur áskriftarsendinga gilda sömu reglur og um önnur kaup á jorth.is.
Ábyrgð
Komi upp galli á vöru við afhendingu mun JÖRTH annað hvort afhenda nýja vöru eða endurgreiða kaupverð samkvæmt samkomulagi við kaupanda.
Kaupandi er vinsamlegast beðinn um að senda mynd af lotunúmeri og galla á netfangið jorth@jorth.is.
Persónuvernd
JÖRTH heitir kaupanda fullum trúnaði um allar persónuupplýsingar sem veittar eru í tengslum við viðskipti.
Persónuupplýsingar eru eingöngu notaðar til að afgreiða pantanir og uppfylla lagalegar skyldur. Upplýsingar eru aldrei afhentar þriðja aðila nema lög kveði á um annað eða það sé nauðsynlegt til að ljúka þjónustu, svo sem vegna greiðslumiðlunar eða sendingar.
Um skilmála þessa gilda íslensk lög, þar á meðal lög um neytendakaup og lög um fjarsölu og samninga utan fastrar starfsstöðvar, eftir því sem við á.

