


Hvað gerir Nerv fyrir þig?
Styður tauga- og meltingarkerfið
SignalBiome™ Complex sameinar örhjúpað butyrate, gerjaða íslenska broddmjólk og sérvalda Bifidobacteria-góðgerlastofna í formúlu sem þróuð hefur verið með áherslu á samspil tauga- og meltingarkerfisins.
Styður daglegt jafnvægi
Formúlan byggir á samverkandi innihaldsefnum sem styðja eðlilega starfsemi tauga- og meltingarkerfisins og hentar sem hluti af daglegri vellíðunarrútínu.
Byggir á rannsóknum á þarma-heila ás
SignalBiome™ Complex var þróað út frá rannsóknarvinnu Jörth á tengslum meltingar, þarmaflóru og taugakerfis, oft nefndum þarma–heila ás (e. gut–brain axis).
Styður heilbrigði þarmaflóru
Örhjúpað butyrate, gerjuð íslensk broddmjólk og sérvaldir Bifidobacteria-góðgerlastofnar vinna saman að því að styðja jafnvægi í meltingarvegi og heilbrigði þarmaflóru.
Uppruni & þróun
Nerv sameinar SignalBiome™ Complex, örhjúpað butyrate, gerjaða íslenska broddmjólk og sérvalda góðgerla, þróað út frá rannsóknarvinnu og fagþekkingu Jörth á tengslum meltingar, taugakerfis og almennrar vellíðanar.
Hvað er SignalBiome™ Complex?
SignalBiome™ Complex er sérhönnuð blanda af örhjúpuðu butyrate, gerjaðri íslenskri broddmjólk og sérvöldum Bifidobacteria-góðgerlastofnum sem þróuð hefur verið út frá rannsóknarvinnu og fagþekkingu Jörth á tengslum meltingar, þarmaflóru og taugakerfis.
Formúlan byggir á samverkandi innihaldsefnum sem styðja eðlilega starfsemi tauga- og meltingarkerfisins og daglegt jafnvægi.
Hvað er broddmjólk
Gerjuð íslensk broddmjólk (e. fermented bovine colostrum) byggir á fyrstu mjólkinni sem kýr framleiða eftir burð og er náttúrulega rík af lífvirkum efnum. Jörth notar gerjaða íslenska broddmjólk sem er unnin samkvæmt sérhannaðri aðferðafræði fyrirtækisins, þróaðri út frá rannsóknarvinnu og fagþekkingu á gerjun og vinnslu lífvirkra hráefna.
Gerjuð íslensk broddmjólk er lykilhluti BalanceBiome™, MucosaBiome™ og SignalBiome™ Complex og hefur verið valin fyrir samverkandi hlutverk sitt í formúlum sem þróaðar hafa verið með áherslu á meltingu, slímhúðir, taugakerfi og náttúrulegar varnir líkamans.
Hvað er örhjúpun?
Örhjúpun (e. microencapsulation) er háþróuð vinnsluaðferð sem notuð er til að auka stöðugleika og vernda lífvirk innihaldsefni. Í formúlum Jörth er tækninni beitt á sérvalda góðgerla með það að markmiði að auka stöðugleika þeirra og vernda þá á leið um meltingarveginn.
Örhjúpun er lykilþáttur í BalanceBiome™, SignalBiome™, RestoreBiome™ og FocusBiome™ Complex og endurspeglar áherslu Jörth á rannsóknarmiðaða þróun og háþróaða vinnslu lífvirkra hráefna.
Rannsóknir benda til að örhjúpun geti aukið líkur á að góðgerlar þoli áhrif magasýru, meltingarensíma og gallsýra. Með því er unnt að hafa áhrif á hvenær og hvar hjúpurinn leysist upp eftir inntöku, sem getur stuðlað að því að fleiri góðgerlar nái til þarmanna þar sem þeir geta tekið þátt í samspili við þarmaumhverfið.
Ábyrg nýting hráefna
Broddmjólk er framleidd fyrstu dagana eftir burð og er fyrst og fremst ætluð kálfinum. Aðeins þegar þörfum hans hefur verið fullnægt er afgangurinn nýttur til framleiðslu.
Með þessari nálgun nýtist verðmætt íslenskt hráefni sem annars færi að stórum hluta til spillis. Fyrir Jörth er ábyrg nýting auðlinda órjúfanlegur hluti af þróun formúlanna og endurspeglar þá áherslu fyrirtækisins að sameina vísindi, nýsköpun og virðingu fyrir náttúrunni.
Samfélag Jörth
Umsagnir
„Ég fann greinilegan mun eftir aðeins nokkra daga á Nerv. Ég upplifði meira jafnvægi, minni streitu og fann að ég náði betri hvíld.“
Jónína, 48 ára
Ég var að taka Abdom og skipti yfir í Nerv til að fá meira af stuttkeðju fitusýrum.
Guðmundur, 51 árs
„Ég byrjaði á Nerv eftir erfitt tímabil og fann fljótt mun. Mér fannst ég rólegri og betur í stakk búin til að takast á við daglegt líf.“
Þórunn, 63

