Dagskrá

Kvöld 1 – Næring og lífsflóran (Smiðshús, Eyrarbakka)

  • Fordrykkur og stutt kynning
  • Núvitund í náttúrunni
  • Fræðsla: Næringin, lífsflóran og heilsan – nýjustu rannsóknir
  • Máltíð: Léttur matur og spjall um líkamlega og andlega heilsu
  • Verkfæri: Matslistar til að meta eigin líðan og markmiðasetning
  • Lokun: Slökun með náttúruhljóðum

Kvöld 2 – Mat á stöðu og framtíðarplan (Zoom)

  • Staða lífsflórunnar: Árangur, hugleiðingar og ný markmið
  • Næstu skref og langtímaplan

Næring, náttúra og núvitund – leiðir til að koma jafnvægi á lífsflóruna

Lengd:
Námskeiðið stendur í fjórar vikur. Námskeiðið hefst á heimili Birnu í fallegu umhverfi við sjóinn á Eyrarbakka þar sem línurnar eru lagðar. Seinna kvöldið er haldið á Zoom þar sem farið er yfir stöðuna og ný markmið sett. Þátttakendur fá aðgang að lokuðu svæði þessar fjórar vikur þar sem frekari upplýsingar og fróðleik er að finna.

Um námskeiðið:
Þetta einstaka námskeið byggir á samspili næringarlæknisfræði, náttúruupplifunar og andlegrar líðanar, þar sem áhersla er lögð á heildræna nálgun til að efla bæði líkama og sál.

Næsta námskeið verður haldið þann 16. janúar 2025 (Eyrarbakka) og þann 13. febrúar (Zoom). Námskeiðið er milli 18 og 21 bæði kvöldin.

Innifalið:

  • Verkfæri til að meta sína eigin líðan (streitu, meltingarvandamál o.fl.)
  • Fræðsla um tengsl næringar og heilsu
  • Góð ráð fyrir langtíma heilsueflingu
  • Leiðsögn til að setja markmið og vinna í eigin heilsu
  • Hollan og næringarríkan mat í fallegu umhverfi
  • Persónulega nálgun og stuðning við að bæta líðan

Fyrir hverja:

  • Einstaklinga sem vilja efla heilsu sína á grunni vísindalegrar þekkingingar og læra heildrænar aðferðir til úrbóta
  • Einstaklinga sem hafa áhuga á að njóta þess að borða góðan og næringarríkan mat. Hafa áhuga á að vera í fallegu og nærandi umhverfi um leið og þeir skoða heilsu sína út frá mismunandi hliðum
Kaupa - 39.900 kr

ATH! Takmarkaður fjöldi – persónuleg nálgun/upplifun