1.0 Abdom
Abdom 1.0 eflir Abdom bætiefnið styrkir meltingarveginn, eflir þarmaflóruna og kemur jafnvægi á meltinguna. Það er búið til úr hágæðahráefnum sem græða þig innan frá, eitt skref í einu. Heilbrigður meltingarvegur ásamt öflugri meltingarflóru er grunnurinn að góðri heilsu, bæði líkamlegri og andlegri.
1.1 Immun
Immun er einstakt bætiefni sem eflir ónæmiskerfið með öflugri blöndu af gerjaðri broddmjólk, lysozyme og ovotransferríni. Með örverueyðandi og bólgueyðandi áhrifum styður Immun við heilbrigðar varnir líkamans, ver þig gegn sýkingum og eykur almenna vellíðan.
1.2 Nerv
Nerv er kraftmikið bætiefni sem veitir jafnvægi og ró með blöndu af gerjaðri broddmjólk, smjörsýru, góðgerlum, þíamíni og bíótíni og sem vinna saman til að styðja við taugakerfið. Hvort sem þú ert að leita að meiri fókus eða minni streitu þá hjálpar Nerv þér að viðhalda góðri orku og einbeitingu.
2.0 Dorm
Dorm er hágæða bætiefni sem hjálpar þér að slaka á og ná betri svefngæðum. Með þurrgerjuðum íslenskum mysupróteinum, sér hannaðri míkróhjúpaðri góðgerlablöndu og amínósýrunum L-tryptófan og L-þeanín hjálpar Dorm þér að ná dýpri slökun ásamt betri endurheimt.
2.1 Focuz
Focuz er öflugt bætiefni sem eykur fókus og skýra hugsun með öflugri blöndu af þurrgerjuðum mysupróteinum, sérhannaðri míkróhjúpaðri góðgerlablöndu ásamt L-týtósíni og B-vítamínum. Focuz er fyrir þá sem vilja auka einbeitingu og ná hámarks frammistöðu yfir daginn. Focuz hentar þér ef þú vilt meiri orku og skýrleika í öllu sem þú gerir.
Verslun
Eflir meltingu
Inniheldur sérvalda góðgerlablöndu sem byggir upp þarmaflóruna og eflir heilbrigði hennar.
Græðir meltingarveginn
Gerjuð broddmjólkin og sérvalin góðgerlablanda efla varnir líkamans með því að byggja upp þarmaflóruna og draga úr gegndræpi þarma.
Styrkir taugakerfið
Inniheldur gerjaða broddmjólk sem græðir og styrkir þarmaveggi og dregur úr líkum á auknu gegndræpi.
Styrkir ónæmiskerfið
Sérvaldir góðgerlar mynda taugaboðefni, hormón og framleiða stuttkeðju fitusýrur sem hafa jákvæð áhrif á heila og taugakerfi.
Í upphafi
Jörth varð til á sunnudagsmorgni. Sólin var rétt tekin gægjast inn um eldhúsgluggann hjá hjónunum Birnu G. Ásbjörnsdóttur og Guðmundi Ármanni Péturssyni þar sem þau sátu við morgunverðarborðið. Þar höfðu þau margoft áður setið og velt fyrir sér tengslum mataræðis og heilsu, skoðað alls konar bætiefni fyrir meltinguna en fannst alltaf eitthvað vanta. Það var þá sem hugmyndinni laust niður. Þau ákváðu að fylgja tilfinningunni, taka af skarið og gera þetta sjálf. Þar með stigu þau fyrsta skrefið í átt að betra lífi, bæði fyrir þau sjálf og aðra.