Náttúra & vísindi
Þar sem náttúran og vísindin mætast.
Við sækjum innblástur til náttúrunnar og þróum formúlur á grunni rannsókna, fagþekkingar og skilnings á líffræði líkamans.
Náttúran veitir innblásturinn. Vísindin leiða þróunina.
Við trúum því að skilningur á líffræði líkamans sé forsenda markvissrar þróunar formúla.
Þess vegna sameinum við rannsóknir, fagþekkingu og sérvalin hráefni í formúlur sem byggja á samspili meltingar, þarmaflóru, taugakerfis og ónæmiskerfis.
Við þróum ekki formúlur út frá einstökum innihaldsefnum heldur út frá líffræðilegum tengslum líkamans. Sú hugsun endurspeglast í Biome Complex blöndunum sem eru kjarninn í öllum vörum Jörth.
Markmið okkar er að þróa formúlur sem vinna með náttúrulegum ferlum líkamans og styðja daglegt jafnvægi og vellíðan.
lazy"

