Sjálfbærni
Ábyrgð sem nær lengra en umbúðir.
Við trúum því að sjálfbærni byggist á þeim ákvörðunum sem teknar eru á hverju stigi þróunarinnar. Frá vali hráefna og vinnsluaðferða til umbúða og daglegrar notkunar.
Markmið okkar er að þróa formúlur sem endast, nýtast vel og styðja við meðvitaðri nálgun að daglegri vellíðan.
Ábyrgð í hverju skrefi
Sjálfbærni hjá Jörth byggir á þeirri hugsun að gæði og ábyrgð eigi alltaf að haldast í hendur.
Gerjuð íslensk broddmjólk og þurrgerjuð íslensk mysuprótein eru dæmi um hvernig verðmæt islensk hráefni hafa fengið nýtt hlutverk i stað þess að fara til spillis.
Við veljum vinnsluaðferðir sem styðja náttúrulega virkni hráefna, nýtum verðmæt íslensk hráefni af ábyrgð og leggjum áherslu á umbúðir sem eru hannaðar til endurnotkunar og áfyllingar.
Glerglösin eru ætluð til langtíma notkunar og áfyllingarumbúðirnar draga úr umbúðanotkun til lengri tíma. Með þeirri nálgun viljum við auðvelda fólki að taka upplýsta rog ábyrgari ákvarðanir í daglegu lífi.
Við lítum á sjálfbærni sem hluta af sömu hugsun og liggur að baki formúlunum sjálfum, að vinna með náttúrunni af virðingu og stuðla að jafnvægi til lengri tíma.

