Fara í yfirlit
Endurstilling - Immun + Nerv
Endurstilling - Immun + Nerv
Endurstilling - Immun + Nerv
Endurstilling - Immun + Nerv

Endurstilling - Immun + Nerv

21,400 ISK

Þegar líkaminn þarf að finna jafnvægi á ný.

Endurstilling sameinar Immun og Nerv í lausn sem þróuð hefur verið með áherslu á samspil ónæmiskerfis, taugakerfis og þarmaflóru.

Lausnin hentar sérstaklega þegar líkaminn þarf aukinn stuðning eftir langvarandi álag eða veikindi, eða þegar markmiðið er að styðja við innra jafnvægi og almenna vellíðan.

Formúlurnar eru hannaðar til að vinna saman og styðja náttúrulega starfsemi ónæmiskerfis, taugakerfis og þarmaflóru.

Endurstilling fæst í sérhönnuðum glerglösum og áfyllingarumbúðum.

Byggt á rannsóknum og fagþekkingu

Sérvalin náttúruleg hráefni

Endurvinnanlegar umbúðir

Pairs well with

Fyrir hverja hentar Endurstilling?

Endurstilling hentar þeim sem:

  • vilja styðja við eðlilega starfsemi ónæmiskerfisins.
  • vilja styðja heilbrigði slímhúða.
  • vilja styðja við meltingu og örveruflóru þarmanna.
  • vilja styðja við samspil meltingarvegar, slímhúða og ónæmiskerfis.
  • vilja heildræna nálgun á daglegt jafnvægi og vellíðan.
Hvernig vinna formúlurnar saman?

Immun og Nerv eru hannaðar til að vinna saman með áherslu á samspil meltingarvegar, ónæmiskerfis og taugakerfis.

Immun byggir á MucosaBiome™ Complex og sameinar gerjaða íslenska broddmjólk, náttúrulega lífvirka ónæmisþætti, sink, A-vítamín og bíótín. Formúlan styður við eðlilega starfsemi ónæmiskerfisins og heilbrigði slímhúða.

Nerv byggir á SignalBiome™ Complex og sameinar örhúpað bútýrat, gerjaða íslenska broddmjólk, Bifidobacterium-góðgerlastofna og B-vítamín. Formúlan styður við eðlilega starfsemi taugakerfisins og tengsl þess við meltingarveginn.

Saman mynda formúlurnar heildræna lausn sem styður við ónæmiskerfið, taugakerfið og innra jafnvægi.

Hvað inniheldur lausnin?

Immun – MucosaBiome™ Complex
Gerjuð íslensk broddmjólk, náttúrulegir lífvirkir ónæmisþættir, sink, A-vítamín og bíótín, þróað með áherslu á ónæmiskerfið og heilbrigði slímhúða.

Nerv – SignalBiome™ Complex
Örhjúpað bútýrat, gerjuð íslensk broddmjólk, Bifidobacterium-góðgerlastofnar og B-vítamín, þróað með áherslu á samspil meltingar og taugakerfis.

Virk innihaldsefni

MucosaBiome™ Complex:

  • Gerjuð íslensk broddmjólk (600 mg)
  • Lysozyme (60 mg)
  • Ovotransferrin (60 mg)
  • Sink (10 mg)
  • A-vítamín (120 μg)
  • Bíótín (B7-vítamín) (50 μg)

SignalBiome™ Complex:

  • Örhjúpað bútýrat (250 mg)
  • Bifidobacterium-góðgerlastofnar (100 mg)
  • Gerjuð íslensk broddmjólk (50 mg)
  • B3-vítamín (níasínamíð) (16 mg)
  • B1-vítamín (þíamín) (1.1 mg)
  • Bíótín (B7-vítamín) (50 μg)
  • 10 milljarðar lifandi góðgerla (CFU) í dagskammti (2 hylki)
Notkun

Immun
3 hylki daglega með vatni. Hægt er að taka formúluna á fastandi maga eða með mat. Ef þess er kostur er ráðlagt að dreifa inntökunni yfir daginn.

Nerv
2 hylki að morgni með vatni.

Formúlurnar eru þróaðar til reglulegrar notkunar og má taka samhliða sem hluta af daglegri heilsurútínu.