Fara í yfirlit
Abdom 1.0
Abdom 1.0
Abdom 1.0

Abdom 1.0

15,990 ISK

Abdom styður við heilbrigða meltingu, fjölbreytta þarmaflóru og náttúrulegt jafnvægi líkamans. Þróað út frá rannsóknarvinnu og fagþekkingu Jörth á tengslum þarmaflóru, meltingar og almennrar heilsu.

Abdom inniheldur BalanceBiome™ Complex, sérhannaða blöndu af gerjaðri íslenskri broddmjólk og 19 örhjúpuðum góðgerlastofnum sem þróuð hefur verið með áherslu á náttúrulegt jafnvægi meltingarkerfisins og daglegan stuðning við þarmaflóruna.

Formúlan inniheldur 19 tegundir góðgerla og 50 milljarða CFU í dagskammti.

Meltingarvegurinn gegnir lykilhlutverki í vellíðan líkamans og hefur áhrif á meðal annars upptöku næringarefna, ónæmiskerfi og jafnvægi í líkamanum. Abdom er ætlað fyrir þau sem vilja styðja við heilbrigða meltingu og jafnvægi í þarmaflóru með reglulegum og heildrænum stuðningi.

Abdom fæst í sérhönnuðu glerglasi sem verndar gæði formúlunnar, ásamt áfyllingarumbúðum (60 hylki).

Byggt á rannsóknum og fagþekkingu

Sérvalin náttúruleg hráefni

Endurvinnanlegar umbúðir

Pairs well with

Ávinningur
  • Styður við jafnvægi í meltingarvegi.
  • Stuðlar að heilbrigðri þarmaflóru.
  • Styður náttúrulegar varnir líkamans.
  • Hentar daglegri notkun.
  • Byggir á BalanceBiome™ Complex með gerjaðri íslenskri broddmjólk og 19 örhjúpuðum góðgerlastofnum.
  • Þróað út frá rannsóknum á tengslum þarmaflóru, meltingar og þarmaþekju (e. barrier function).
Vísindin á bak við formúluna

Meltingarvegurinn gegnir lykilhlutverki í daglegri heilsu líkamans og hefur áhrif á meðal annars upptöku næringarefna, ónæmiskerfi og almenna vellíðan.

Fjöldi rannsókna bendir til þess að jafnvægi í þarmaflóru og eðlileg starfsemi meltingarkerfisins geti haft víðtæk áhrif á líkamlega og andlega heilsu. Abdom er þróað með áherslu á þessi tengsl og sameinar gerjaða íslenska broddmjólk og sérvalda örhjúpaða góðgerlablöndu í heildrænni nálgun á meltingu og jafnvægi.

Formúlan inniheldur BalanceBiome™ Complex sem samanstendur af gerjaðri íslenskri broddmjólk og 19 tegundum góðgerla, með 50 milljörðum CFU í dagskammti. Broddmjólkin er unnin samkvæmt sérhannaðri vinnsluaðferð Jörth, þróaðri út frá rannsóknarvinnu og fagþekkingu á gerjun og vinnslu lífvirkra hráefna.

Formúlan er þróuð til reglulegrar notkunar sem hluti af daglegum stuðningi við þarmaflóru og meltingarkerfi.

Virk innihaldsefni
  • Gerjuð Íslensk broddmjólk (400 mg)
  • 19 sérvaldir góðgerlastofnar (200 mg)
  • 50 milljarðar lifandi baktería (CFU) í dagskammti (2 hylki)

Formúlan

Abdom inniheldur BalanceBiome™ Complex, sérhannaða blöndu af gerjaðri íslenskri broddmjólk og 19 örhjúpuðum góðgerlastofnum sem þróuð hefur verið út frá rannsóknarvinnu og fagþekkingu Jörth á tengslum þarmaflóru, meltingar og almennrar heilsu.

Góðgerlastofnar:

  • Bifidobacterium adolescentis
  • Bifidobacterium bifidum
  • Bifidobacterium breve
  • Bifidobacterium infantis
  • Bifidobacterium lactis
  • Bifidobacterium longum
  • Enterococcus faecium
  • Lacticaseibacillus casei
  • Lacticaseibacillus paracasei subsp. paracasei
  • Lacticaseibacillus rhamnosus
  • Lactiplantibacillus plantarum
  • Lactobacillus acidophilus
  • Lactobacillus delbrueckii subsp. bulgaricus
  • Lactobacillus helveticus
  • Lactococcus lactis subsp. lactis
  • Levilactobacillus brevis
  • Ligilactobacillus salivarius
  • Saccharomyces boulardii
  • Streptococcus thermophilus
Umbúðir & áfyllingar

Jörth byggir á þeirri hugmynd að náttúra, vísindi og vönduð hönnun fari saman. Þess vegna eru allar formúlur fyrirtækisins settar í sérhönnuð margnota glerglös sem eru þróuð til að vernda gæði og stöðugleika formúlunnar. Hönnun glasanna er vernduð með einkaleyfi.

Þegar fyrsta glasið hefur verið keypt er hægt að velja áfyllingar í léttum, endurvinnanlegum umbúðum. Með þeirri nálgun er dregið úr umbúðanotkun og auðlindanýting bætt án þess að skerða gæði eða öryggi formúlunnar.

Án aukaefna

Jörth leggur áherslu á hreinleika hráefna og rannsóknarmiðaða þróun. Þess vegna eru allar formúlur fyrirtækisins án:

  • Fylliefna
  • Sætuefna
  • Soja
  • Glútens
  • Erfðabreyttra innihaldsefna (GMO)
  • Sýklalyfja
Notkun

Takið 1–2 hylki daglega að morgni með vatni. Hægt er að taka formúluna á fastandi maga eða með mat.

Mælt er með að hefja notkun með 1 hylki á dag og auka síðan í 2 hylki eftir þörfum.

Glasið inniheldur 60 hylki (30–60 daga skammt, fer eftir notkun).

Algengar spurningar

Má taka Abdom daglega?

Já. Abdom er þróað til daglegrar notkunar og hentar vel sem hluti af daglegri heilsurútínu.

Hvenær er best að taka Abdom?

Mælt er með að taka Abdom að morgni. Má taka á fastandi maga eða með mat.

Þarf að geyma Abdom í kæli?

Nei, ekki er þörf á kælingu. Geymið fjarri beinu sólarljósi.

Hvað eru örhjúpaðir góðgerlar?

Örhjúpun hjálpar til við að vernda góðgerlana gegn maga- og gallsýrum og styður við stöðugleika þeirra í gegnum meltingarveginn.

Hvenær má búast við að finna mun?

Það er einstaklingsbundið hversu hratt fólk finnur fyrir breytingum. Margir finna fljótt fyrir breytingum á meltingu og vellíðan en hjá öðrum tekur það lengri tíma.

Má taka Abdom með öðrum bætiefnum?

Já, almennt má taka Abdom samhliða öðrum bætiefnum. Ef þú ert í vafa er ráðlagt að leita ráðgjafar hjá heilbrigðisstarfsfólki. Abdom hentar vel með öðrum formúlum frá Jörth og er grunnur að mörgum af Lausnum Jörth.

Hvað gerir Abdom fyrir þig?

Styður meltingarveginn

Inniheldur þætti sem rannsóknir sýna að styðja heilbrigðan þarmavegg og eðlilega starfsemi þarmaþekjunnar. Rannsóknir sýna að heilbrigt gegndræpi þarma dregur úr líkum á að bólgumyndandi þættir og skaðlegar örverur komist frá meltingarvegi út í líkamann.

Styður þarmaflóruna

Sérvalin blanda góðgerla styður þarmaflóruna. Sýrð broddmjólkin inniheldur mjög lítið magn laktósa og hentar því flestum til inntöku, einnig þeim sem eru viðkvæmir fyrir laktósa.

Rannsóknir sýna að heilbrigð þarmaflóra getur dregið úr óþolum og komið í veg fyrir óþægindi í meltingarvegi, dregið úr vindgangi, uppþembu og komið reglu á hægðir. Heilbrigð þarmaflóra eykur frásog og nýtingu næringarefna í meltingarvegi. Heilbrigð þarmaflóra styður frásog og nýtingu næringarefna. Hún tekur einnig þátt í myndun ákveðinna B-vítamína og K-vítamíns sem geta haft jákvæð áhrif á eðlilega starfsemi líkamans.

Styður taugakerfið

Inniheldur sérvalda góðgerla sem samkvæmt rannsóknum geta haft jákvæð áhrif á heila og taugakerfi. Góðgerlar gegna mikilvægu hlutverki í örveru–þarma–heila ásnum og rannsóknir benda til að þeir geti haft áhrif á myndun og virkni ýmissa taugaboðefna, þar á meðal GABA, serótóníns og dópamíns.

Styður ónæmiskerfið

Inniheldur náttúrulega lífvirka þætti úr gerjaðri broddmjólk og sérvalda góðgerla. Rannsóknir benda til að ákveðnir stofnar geti haft áhrif á ónæmissvörun og starfsemi meltingarvegar.

Ákveðnir góðgerlar í blöndunni tengjast framleiðslu stuttkeðju fitusýra (SCFA), sem gegna mikilvægu hlutverki í eðlilegri starfsemi þarmaþekjunnar.

Uppruni & þróun

Abdom byggir á BalanceBiome™ Complex, sérhannaðri blöndu af gerjaðri íslenskri broddmjólk og sérvöldum örhjúpuðum góðgerlum sem þróuð hefur verið út frá rannsóknarvinnu og fagþekkingu Jörth á tengslum þarmaflóru, meltingar og almennrar heilsu.

Hvað er BalanceBiome™ Complex? 

BalanceBiome™ Complex er sérhönnuð blanda af gerjaðri íslenskri broddmjólk og sérvöldum örhjúpuðum góðgerlum sem þróuð hefur verið út frá rannsóknarvinnu og fagþekkingu Jörth á tengslum þarmaflóru, meltingar og almennrar heilsu.

Formúlan byggir á samverkandi innihaldsefnum sem styðja náttúrulega starfsemi meltingarvegarins og daglegt jafnvægi líkamans.

Hvað er broddmjólk

Gerjuð íslensk broddmjólk (e. fermented bovine colostrum) byggir á fyrstu mjólkinni sem kýr framleiða eftir burð og er náttúrulega rík af lífvirkum efnum. Jörth notar gerjaða íslenska broddmjólk sem er unnin samkvæmt sérhannaðri aðferðafræði fyrirtækisins, þróaðri út frá rannsóknarvinnu og fagþekkingu á gerjun og vinnslu lífvirkra hráefna.

Gerjuð íslensk broddmjólk er lykilhluti BalanceBiome™, MucosaBiome™ og SignalBiome™ Complex og hefur verið valin fyrir samverkandi hlutverk sitt í formúlum sem þróaðar hafa verið með áherslu á meltingu, slímhúðir, taugakerfi og náttúrulegar varnir líkamans.

Hvað eru góðgerlar?

Góðgerlar (e. probiotics) eru lifandi örverur sem, þegar þeirra er neytt í nægilegu magni, geta haft jákvæð lífeðlisfræðileg áhrif á hýsilinn. Skilgreiningin byggir á viðmiðum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) og Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO).

Í formúlum Jörth eru góðgerlastofnarnir örhjúpaðir (e. microencapsulated) með það að markmiði að auka stöðugleika þeirra og vernda þá á leið um meltingarveginn. Örhjúpun er lykilþáttur í BalanceBiome™, SignalBiome™, RestoreBiome™ og FocusBiome™ Complex og endurspeglar áherslu Jörth á að sameina rannsóknarmiðaða þróun, gæði og háþróaða vinnslu lífvirkra hráefna.

Hvað er örhjúpun?

Örhjúpun (e. microencapsulation) er háþróuð vinnsluaðferð sem notuð er til að auka stöðugleika og vernda lífvirk innihaldsefni. Í formúlum Jörth er tækninni beitt á sérvalda góðgerla með það að markmiði að auka stöðugleika þeirra og vernda þá á leið um meltingarveginn.

Örhjúpun er lykilþáttur í BalanceBiome™, SignalBiome™, RestoreBiome™ og FocusBiome™ Complex og endurspeglar áherslu Jörth á rannsóknarmiðaða þróun og háþróaða vinnslu lífvirkra hráefna.

Rannsóknir benda til að örhjúpun geti aukið líkur á að góðgerlar þoli áhrif magasýru, meltingarensíma og gallsýra. Með því er unnt að hafa áhrif á hvenær og hvar hjúpurinn leysist upp eftir inntöku, sem getur stuðlað að því að fleiri góðgerlar nái til þarmanna þar sem þeir geta tekið þátt í samspili við þarmaumhverfið.

ÁBYRG NÝTING HRÁEFNA

Broddmjólk er framleidd fyrstu dagana eftir burð og er fyrst og fremst ætluð kálfinum. Aðeins þegar þörfum hans hefur verið fullnægt er afgangurinn nýttur til framleiðslu.

Jörth leggur áherslu á ábyrga nýtingu þessa verðmæta íslenska hráefnis sem annars færi að stórum hluta til spillis.

Sú nálgun endurspeglar hugmyndafræði fyrirtækisins um að sameina vísindi, gæði og virðingu fyrir náttúrunni í allri þróun og framleiðslu.

Samfélag Jörth

Umsagnir