Íslenskur uppruni
Mótað af íslenskri náttúru, hreinleika og kyrrð.
Fyrir okkur er Ísland er meira en fallegt land með stórbrotinni náttúru.
Þar liggja rætur þeirrar hugsunar sem mótar Jörth.
Náttúra Íslands hefur kennt okkur að lífið byggist á jafnvægi, reglusemi og samspili. Náttúruöflin, þar sem jörð, eldur, loft og vatn móta landslagið, minna okkur daglega á að sterkustu kerfin verða til þegar þessi öfl vinna saman. Lífið byggist ekki á kyrrstöðu heldur stöðugri hreyfingu, aðlögun og jafnvægi.
Þessi sýn fylgir okkur í þróun hverrar formúlu.
Rætur í íslenskri náttúru
Íslensk náttúra skaffar ekki aðeins hráefnin sem við veljum heldur hefur áhrif á og mótar hvernig við hugsum um heilsu.
Við sækjum innblástur í landslagið, hreinleikann og þau sterku öfl sem einkenna Ísland. Sú hugsun endurspeglast í gerjaðri íslenskri broddmjólk, þurrgerjuðum íslenskum mysupróteinum og þeirri virðingu sem við berum fyrir náttúrulegum hráefnum og ábyrgri nýtingu þeirra.
En íslenskur uppruni snýst ekki aðeins um hráefni.
Hann endurspeglast í yfirvegaðri nálgun þar sem rannsóknir, náttúra og daglegar venjur vinna saman að því að styðja náttúrulega starfsemi líkamans.
Þannig er Ísland hluti af Jörth, ekki aðeins sem uppruni hráefna, heldur sem innblástur að þeirri heimspeki sem liggur að baki öllu sem við gerum.

