Hráefnin okkar
Hvert hráefni hefur tilgang.
Við veljum ekki hráefni út frá eftirspurn.
Við veljum hráefni sem endurspegla þá hugsun sem mótar Jörth.
Þar gegna gerjuð íslensk broddmjólk og þurrgerjuð íslensk mysuprótein lykilhlutverki sem kjarnahráefni í formúlum Jörth.
Bæði hráefnin eiga rætur í íslenskri mjólkurframleiðslu og eru nýtt af ábyrgð sem hluti af sérhannaðri þróunarvinnu Jörth.
Hvert hráefni sem við veljum að nota hafa skýrt hlutverk innan formúlunnar og styðja það líffræðilega samspil sem við viljum vinna með.
Þess vegna byggir hver Jörth-formúla á sérhannaðri Biome Complex blöndu, þar sem lífvirk innihaldsefni eru valin fyrir samverkandi hlutverk sitt fremur en einstaka eiginleika.
Við leggjum sérstaka áherslu á gæði hráefna, stöðugleika þeirra og vinnsluaðferðir sem styðja náttúrulega virkni þeirra. Þar gegna meðal annars örhjúpun, gerjuð íslensk broddmjólk og þurrgerjuð íslensk mysuprótein megin hlutverki.
Við trúum því að gæði formúlu ráðist ekki aðeins af því hvaða innihaldsefni hún inniheldur, heldur einnig hvernig þau vinna saman.
Gæði byggja á samspili
Við trúum því að gæði formúlu ráðist ekki aðeins af gæðum hvers innihaldsefnis heldur einnig af því hvernig þau vinna saman.
Þess vegna leggjum við ríka áherslu á vinnsluaðferðir sem styðja stöðugleika og náttúrulega virkni hráefna. Þar gegna meðal annars örhjúpun og sérhæfðar gerjunaraðferðir lykilhlutverki.
Við veljum hráefni sem uppfylla strangar gæðakröfur og eru valin með hliðsjón af samverkandi hlutverki sínu innan formúlunnar fremur en einstökum eiginleikum.
Markmiðið er ekki að velja sem flest innihaldsefni heldur að þróa formúlur þar sem hvert hráefni hefur skýran tilgang og styður náttúrulegt samspil líkamans.

