Fara í yfirlit

Heilsa byggir á samspili


Það er auðvelt að hugsa um heilsu sem samansafn aðskildra kerfa. 

Meltingin á einum stað. Taugakerfið á öðrum. Ónæmiskerfið sem sitt eigið kerfi.

En líkaminn starfar ekki þannig.

Á síðustu árum hafa rannsóknir í auknum mæli beint sjónum að því hvernig þessi kerfi eru tengd og hafa stöðug áhrif hvert á annað.

Þarmaflóran hefur þar sérstaklega vakið athygli, ekki aðeins í tengslum við meltingu heldur einnig ónæmissvörun, taugakerfi, bólguferla og daglega líðan.

Í meltingarveginum eiga sér stað flókin samskipti milli örvera, slímhúðar, ónæmiskerfis og taugakerfis.

Þessi samskipti eru hluti af því sem í dag er oft kallað microbiota-gut-brain axis, tengslakerfi sem hefur orðið sífellt mikilvægara í rannsóknum á heilsu og vellíðan.

Þegar við hugsum um heilsu út frá tengslum frekar en einangruðum einkennum breytist nálgunin.

Þá verður svefn ekki aðeins spurning um þreytu.

Melting ekki aðeins spurning um magaóþægindi.

Streita ekki aðeins andlegt álag.

Líkaminn starfar í gegnum kerfi. Kerfi sem vinna saman.

Þessi sýn hefur mótað þróun Jörth frá upphafi.

Formúlurnar eru þróaðar með áherslu á samspil meltingar, þarmaflóru, taugakerfis og daglegrar vellíðanar.

Ekki sem skyndilausnir heldur sem hluti af heildrænni nálgun að jafnvægi og reglusemi.

Við trúum því að góð heilsa byggist ekki á því að “laga” eitt kerfi í einu heldur að styðja við þau tengsl sem líkaminn byggir á.

Því heilsan veltur sjaldan á einum þætti. 

Góð heilsa byggir á samspili.