Fara í yfirlit
Nerv 1.2
Nerv 1.2
Nerv 1.2
Nerv 1.2

Nerv 1.2

13,900 ISK

Nerv styður við eðlilega starfsemi tauga- og meltingarkerfisins. Þróað út frá rannsóknarvinnu og fagþekkingu Jörth á tengslum meltingar, taugakerfis og almennrar vellíðanar.

Nerv inniheldur SignalBiome™ Complex, sérhannaða blöndu af sérvöldum góðgerlum, örhjúpuðu butyrate og gerjaðri íslenskri broddmjólk sem þróuð hefur verið með áherslu á tengsl meltingar, taugakerfis og almennrar vellíðanar.

Taugakerfið gegnir mikilvægu hlutverki í því hvernig líkaminn bregst við álagi, streitu og daglegu áreiti. Nerv er ætlað þeim sem vilja styðja við jafnvægi, einbeitingu og innri ró í daglegu lífi.

Nerv fæst í sérhönnuðu glerglasi sem verndar gæði formúlunnar, ásamt áfyllingarumbúðum (60 hylki).

Byggt á rannsóknum og fagþekkingu

Sérvalin náttúruleg hráefni

Endurvinnanlegar umbúðir

Pairs well with

Ávinningur
  • Styður við eðlilega starfsemi tauga- og meltingarkerfisins.
  • Styður við jafnvægi þarma-heila áss (e. gut-brain axis).
  • Hentar daglegri notkun.
  • Byggir á SignalBiome™ Complex með örhúpuðu bútýrati, gerjaðri íslenskri broddmjólk og sérvöldum Bifidobacterium-góðgerlastofnum.
  • Þróað út frá rannsóknum á tengslum meltingar, þarmaflóru og taugakerfis.
Vísindin á bak við formúluna

Meltingarvegurinn og taugakerfið starfa í nánu samspili og eru tengd í gegnum örveruflóru þarmanna, boðefni og taugabrautir sem oft eru nefndar þarma-heila ás.

Nerv er þróað með áherslu á þetta samspil. SignalBiome™ Complex sameinar örhúpað bútýrat, gerjaða íslenska broddmjólk, sérvalda Bifidobacterium-góðgerlastofna og B-vítamín.

Formúlan er þróuð með áherslu á eðlilega starfsemi taugakerfisins og tengsl þess við meltingarveginn.

Virk innihaldsefni

SignalBiome™ Complex:

  • Örhjúpað bútýrat (250 mg)
  • Bifidobacterium-góðgerlastofnar (100 mg)
  • Gerjuð íslensk broddmjólk (50 mg)
  • B3-vítamín (níasínamíð) (16 mg)
  • B1-vítamín (þíamín) (1.1 mg)
  • Bíótín (B7-vítamín) (50 μg)
  • 10 milljarðar lifandi góðgerla (CFU) í dagskammti (2 hylki)
Formúlan

SignalBiome™ Complex er sérhönnuð blanda sem sameinar örhúpað bútýrat, gerjaða íslenska broddmjólk, sérvalda Bifidobacterium-góðgerlastofna og B-vítamín.

Formúlan er þróuð með áherslu á samspil meltingar, örveruflóru þarmanna og taugakerfis og til að styðja við eðlilega starfsemi taugakerfisins.

Umbúðir & áfyllingar

Jörth byggir á þeirri hugmynd að náttúra, vísindi og vönduð hönnun fari saman. Formúlurnar eru settar í sérhönnuð margnota glerglös sem eru þróuð til að vernda gæði og stöðugleika þeirra.

Þegar fyrsta glasið hefur verið keypt er hægt að velja áfyllingar í léttum, endurvinnanlegum umbúðum. Með þeirri nálgun er dregið úr umbúðanotkun og auðlindanýtingu án þess að skerða gæði eða öryggi formúlunnar.

Án aukaefna

Jörth leggur áherslu á hreinleika hráefna og rannsóknarmiðaða þróun. Formúlurnar eru án:

  • Fylliefna
  • Sætuefna
  • Soja
  • Glútens
  • Erfðabreyttra innihaldsefna (GMO)
  • Sýklalyfja
Notkun

Takið 2 hylki daglega með vatni.

Glasið inniheldur 60 hylki (30 daga skammt).

Algengar spurningar

Hvenær er best að taka Nerv?

Hægt er að taka Nerv hvenær sem er dagsins. Margir kjósa að taka formúluna að morgni eða fyrr yfir daginn sem hluta af sinni daglegu rútínu

Er Nerv ætlað til daglegrar notkunar?

Já. Nerv er þróað til reglulegrar notkunar sem hluti af daglegri rútínu með áherslu á jafnvægi tauga- og meltingarkerfisins.

Hvað gerir Nerv frábrugðið öðrum formúlum?

Nerv byggir á SignalBiome™ Complex sem sameinar örhjúpað butyrate, gerjaða íslenska broddmjólk og sérvalda Bifidobacteria-góðgerlastofna í rannsóknamiðaðri samsetningu sem þróuð hefur verið út frá rannsóknarvinnu Jörth á tengslum meltingar, þarmaflóru og taugakerfis.

Af hverju inniheldur Nerv butyrate?

Butyrate er stuttkeðju fitusýra sem hefur verið rannsökuð í tengslum við þarmaþekju, meltingarveg og þarma–heila ás (e. gut–brain axis). Í Nerv er notað örhjúpað butyrate sem er valið með áherslu á stöðugleika og vernd á leið um meltingarveginn.

Hvaða góðgerlastofnar eru í Nerv?

Formúlan inniheldur Bifidobacteria stofnana B. animalis, B. bifidum og B. longum sem hafa verið rannsakaðir í tengslum við jafnvægi þarmaflóru og samspil meltingar og taugakerfis.

Hentar Nerv þeim sem eru með viðkvæma meltingu?

Nerv er þróað með áherslu á samspil tauga- og meltingarkerfisins. Einstaklingsbundið er hvernig fólk bregst við innihaldsefnum og því er ráðlagt að hefja notkun með einum hylki á dag og auka síðan skammtinn eftir þörfum.

Inniheldur Nerv hefðbundna góðgerla?

Já. Nerv inniheldur þrjá sérvalda Bifidobacteria-góðgerlastofna sem eru hluti af SignalBiome™ Complex. Góðgerlastofnarnir eru örhjúpaðir með það að markmiði að auka stöðugleika þeirra og vernda þá á leið um meltingarveginn.

Hvað þýðir þarma-heila ás?

Þarma–heila ás lýsir tvíhliða samskiptum milli meltingarvegar, þarmaflóru og taugakerfis. Rannsóknir benda til að þessi samskipti geti haft áhrif á jafnvægi líkamans og almenna vellíðan.

Get ég tekið Nerv með öðrum Jörth formúlum?

Já. Formúlur Jörth eru þróaðar til að geta unnið saman sem hluti af daglegri rútínu og heildrænni nálgun að heilsu og vellíðan.

Hvað er í einum dagskammti?

Ráðlagður dagskammtur er 2 hylki og inniheldur meðal annars 250 mg örhjúpaðs butyrate, 20 milljarða lifandi Bifidobacteria-góðgerla (CFU), gerjaða íslenska broddmjólk og valin B-vítamín.

Hvað er SignalBiome™ Complex?

SignalBiome™ Complex er sérhönnuð blanda af örhjúpuðu butyrate, gerjaðri íslenskri broddmjólk og sérvöldum Bifidobacteria-góðgerlastofnum sem þróuð hefur verið út frá rannsóknarvinnu og fagþekkingu Jörth á tengslum meltingar, þarmaflóru, taugakerfis og almennrar vellíðanar.

Formúlan byggir á samverkandi innihaldsefnum sem styðja eðlilega starfsemi tauga- og meltingarkerfisins og daglegt jafnvægi líkamans.

Hvað gerir Nerv fyrir þig?

Styður tauga- og meltingarkerfið

SignalBiome™ Complex sameinar örhjúpað butyrate, gerjaða íslenska broddmjólk og sérvalda Bifidobacteria-góðgerlastofna í formúlu sem þróuð hefur verið með áherslu á samspil tauga- og meltingarkerfisins.

Styður daglegt jafnvægi

Formúlan byggir á samverkandi innihaldsefnum sem styðja eðlilega starfsemi tauga- og meltingarkerfisins og hentar sem hluti af daglegri vellíðunarrútínu.

Byggir á rannsóknum á þarma-heila ás

SignalBiome™ Complex var þróað út frá rannsóknarvinnu Jörth á tengslum meltingar, þarmaflóru og taugakerfis, oft nefndum þarma–heila ás (e. gut–brain axis).

Styður heilbrigði þarmaflóru

Örhjúpað butyrate, gerjuð íslensk broddmjólk og sérvaldir Bifidobacteria-góðgerlastofnar vinna saman að því að styðja jafnvægi í meltingarvegi og heilbrigði þarmaflóru.

Uppruni & þróun

Nerv sameinar SignalBiome™ Complex, örhjúpað butyrate, gerjaða íslenska broddmjólk og sérvalda góðgerla, þróað út frá rannsóknarvinnu og fagþekkingu Jörth á tengslum meltingar, taugakerfis og almennrar vellíðanar.

Hvað er SignalBiome™ Complex? 

SignalBiome™ Complex er sérhönnuð blanda af örhjúpuðu butyrate, gerjaðri íslenskri broddmjólk og sérvöldum Bifidobacteria-góðgerlastofnum sem þróuð hefur verið út frá rannsóknarvinnu og fagþekkingu Jörth á tengslum meltingar, þarmaflóru og taugakerfis.

Formúlan byggir á samverkandi innihaldsefnum sem styðja eðlilega starfsemi tauga- og meltingarkerfisins og daglegt jafnvægi.

Hvað er broddmjólk

Gerjuð íslensk broddmjólk (e. fermented bovine colostrum) byggir á fyrstu mjólkinni sem kýr framleiða eftir burð og er náttúrulega rík af lífvirkum efnum. Jörth notar gerjaða íslenska broddmjólk sem er unnin samkvæmt sérhannaðri aðferðafræði fyrirtækisins, þróaðri út frá rannsóknarvinnu og fagþekkingu á gerjun og vinnslu lífvirkra hráefna.

Gerjuð íslensk broddmjólk er lykilhluti BalanceBiome™, MucosaBiome™ og SignalBiome™ Complex og hefur verið valin fyrir samverkandi hlutverk sitt í formúlum sem þróaðar hafa verið með áherslu á meltingu, slímhúðir, taugakerfi og náttúrulegar varnir líkamans.

Hvað er örhjúpun?

Örhjúpun (e. microencapsulation) er háþróuð vinnsluaðferð sem notuð er til að auka stöðugleika og vernda lífvirk innihaldsefni. Í formúlum Jörth er tækninni beitt á sérvalda góðgerla með það að markmiði að auka stöðugleika þeirra og vernda þá á leið um meltingarveginn.

Örhjúpun er lykilþáttur í BalanceBiome™, SignalBiome™, RestoreBiome™ og FocusBiome™ Complex og endurspeglar áherslu Jörth á rannsóknarmiðaða þróun og háþróaða vinnslu lífvirkra hráefna.

Rannsóknir benda til að örhjúpun geti aukið líkur á að góðgerlar þoli áhrif magasýru, meltingarensíma og gallsýra. Með því er unnt að hafa áhrif á hvenær og hvar hjúpurinn leysist upp eftir inntöku, sem getur stuðlað að því að fleiri góðgerlar nái til þarmanna þar sem þeir geta tekið þátt í samspili við þarmaumhverfið.

Ábyrg nýting hráefna

Broddmjólk er framleidd fyrstu dagana eftir burð og er fyrst og fremst ætluð kálfinum. Aðeins þegar þörfum hans hefur verið fullnægt er afgangurinn nýttur til framleiðslu.

Með þessari nálgun nýtist verðmætt íslenskt hráefni sem annars færi að stórum hluta til spillis. Fyrir Jörth er ábyrg nýting auðlinda órjúfanlegur hluti af þróun formúlanna og endurspeglar þá áherslu fyrirtækisins að sameina vísindi, nýsköpun og virðingu fyrir náttúrunni.

Samfélag Jörth

Umsagnir