


Hvað gerir Dorm fyrir þig?
Styður reglulegan svefn
Reglulegur svefn er lykilþáttur í náttúrulegri endurheimt líkamans og hefur áhrif á meðal annars orku, einbeitingu og daglega vellíðan.
Dorm er þróað með áherslu á að styðja slökun, reglulegan svefn og náttúrulega endurheimt. Formúlan byggir á samverkandi innihaldsefnum sem styðja eðlilega svefnrútínu og innri ró.
Styður eðlilega starfsemi taugakerfisins
Taugakerfið gegnir mikilvægu hlutverki í slökun, endurheimt og daglegri vellíðan.
Dorm er þróað með áherslu á að styðja eðlilega starfsemi taugakerfisins með samverkandi innihaldsefnum sem tengjast slökun og náttúrulegri endurheimt.
Styður tengsl þarma og heila
Melting og taugakerfi starfa í nánu samspili í gegnum örveruflóru meltingarvegarins og hafa áhrif hvort á annað.
Dorm inniheldur RestoreBiome™ Complex sem þróað hefur verið með áherslu á tengsl svefns, meltingar og taugakerfis og styður náttúrulega starfsemi örveruflóru og daglegt jafnvægi líkamans.
Styður slökun og innri ró
Langvarandi streita og spenna geta haft áhrif á bæði svefn og náttúrulega endurheimt líkamans.
Dorm er þróað með áherslu á að styðja slökun og innri ró sem hluta af daglegri rútínu og náttúrulegri endurheimt.
Uppruni & þróun
Dorm byggir á RestoreBiome™ Complex, sérhannaðri blöndu af þurrgerjuðum íslenskum mysupróteinum, amínósýrum og sérvöldum örhjúpuðum góðgerlum sem þróuð hefur verið út frá rannsóknarvinnu og fagþekkingu Jörth á tengslum svefns, meltingar, taugakerfis og náttúrulegrar endurheimtar.
Hvað er RestoreBiome™ Complex?
Þurrgerjuð íslensk mysuprótein eru unnin úr íslenskri mysu með sérhæfðri þurrgerjunaraðferð sem er hluti af eigin þróunarvinnu Jörth.
Aðferðin varðveitir eiginleika hráefnisins og gerir það að lykilhluta RestoreBiome™ og FocusBiome™ Complex, þar sem það hefur verið valið fyrir gæði sín og samverkandi hlutverk innan formúlanna.
Hvað eru þurrgerjuð mysuprótein?
Þurrgerjuð íslensk mysuprótein eru unnin úr íslenskri mysu með sérhæfðri þurrgerjunaraðferð sem er hluti af eigin þróunarvinnu Jörth. Aðferðin varðveitir eiginleika hráefnisins og gerir það að lykilhluta RestoreBiome™ og FocusBiome™ Complex, þar sem það er valið fyrir gæði sín og samverkandi hlutverk innan formúlunnar.
Hvað er örhjúpun?
Örhjúpun (e. microencapsulation) er háþróuð vinnsluaðferð sem notuð er til að auka stöðugleika og vernda lífvirk innihaldsefni. Í formúlum Jörth er tækninni beitt á sérvalda góðgerla með það að markmiði að auka stöðugleika þeirra og vernda þá á leið um meltingarveginn.
Örhjúpun er lykilþáttur í BalanceBiome™, SignalBiome™, RestoreBiome™ og FocusBiome™ Complex og endurspeglar áherslu Jörth á rannsóknarmiðaða þróun og háþróaða vinnslu lífvirkra hráefna.
Rannsóknir benda til að örhjúpun geti aukið líkur á að góðgerlar þoli áhrif magasýru, meltingarensíma og gallsýra. Með því er unnt að hafa áhrif á hvenær og hvar hjúpurinn leysist upp eftir inntöku, sem getur stuðlað að því að fleiri góðgerlar nái til þarmanna þar sem þeir geta tekið þátt í samspili við þarmaumhverfið.
Ábyrg nýting hráefna
Þurrgerjuð íslensk mysuprótein eru unnin úr íslenskri mysu sem fellur til við mjólkurframleiðslu á Íslandi. Með sérhannaðri vinnsluaðferð Jörth er verðmætt íslenskt hráefni nýtt á ábyrgan hátt og umbreytt í lífvirkan hluta RestoreBiome™ og FocusBiome™ Complex.
Þessi nálgun endurspeglar áherslu Jörth á ábyrga nýtingu íslenskra hráefna, rannsóknarmiðaða þróun og virðingu fyrir náttúrunni.
Samfélag Jörth
Umsagnir
"Eftir að ég byrjaði að taka Dorm fór ég að sofa betur. Ég vakna minna á nóttunni og ef ég vakna þá sofna ég strax aftur. Ég vakna líka úthvíld núna sem er frábært"
Margrét, 55 ára
"Ég er búin að vera í áskrift í meira en ár og hef aldrei sofið betur."
Jónas Ingi, 67 ára
"Ég tek Dorm áður en ég fer að sofa og finn mun á svefninum. Mér finnst mikill kostur að vakna hress."
Magnea Rós, 48 ára
Endurheimt
Dorm + Abdom
Þegar hvíld og endurnýjun skipta mestu máli.
Endurheimt sameinar Dorm og Abdom í lausn sem þróuð hefur verið með áherslu á samspil svefns, meltingar og örveru–þarma–heila ássins.
Lausnin hentar þeim sem vilja styðja við dýpri hvíld, reglulegan svefn og náttúrulega endurheimt.
Formúlurnar eru hannaðar til að vinna saman og styðja við jafnvægi, hvíld og daglega vellíðan.

