


Hvað gerir Abdom fyrir þig?
Styður meltingarveginn
Inniheldur þætti sem rannsóknir sýna að styðja heilbrigðan þarmavegg og eðlilega starfsemi þarmaþekjunnar. Rannsóknir sýna að heilbrigt gegndræpi þarma dregur úr líkum á að bólgumyndandi þættir og skaðlegar örverur komist frá meltingarvegi út í líkamann.
Styður þarmaflóruna
Sérvalin blanda góðgerla styður þarmaflóruna. Sýrð broddmjólkin inniheldur mjög lítið magn laktósa og hentar því flestum til inntöku, einnig þeim sem eru viðkvæmir fyrir laktósa.
Rannsóknir sýna að heilbrigð þarmaflóra getur dregið úr óþolum og komið í veg fyrir óþægindi í meltingarvegi, dregið úr vindgangi, uppþembu og komið reglu á hægðir. Heilbrigð þarmaflóra eykur frásog og nýtingu næringarefna í meltingarvegi. Heilbrigð þarmaflóra styður frásog og nýtingu næringarefna. Hún tekur einnig þátt í myndun ákveðinna B-vítamína og K-vítamíns sem geta haft jákvæð áhrif á eðlilega starfsemi líkamans.
Styður taugakerfið
Inniheldur sérvalda góðgerla sem samkvæmt rannsóknum geta haft jákvæð áhrif á heila og taugakerfi. Góðgerlar gegna mikilvægu hlutverki í örveru–þarma–heila ásnum og rannsóknir benda til að þeir geti haft áhrif á myndun og virkni ýmissa taugaboðefna, þar á meðal GABA, serótóníns og dópamíns.
Styður ónæmiskerfið
Inniheldur náttúrulega lífvirka þætti úr gerjaðri broddmjólk og sérvalda góðgerla. Rannsóknir benda til að ákveðnir stofnar geti haft áhrif á ónæmissvörun og starfsemi meltingarvegar.
Ákveðnir góðgerlar í blöndunni tengjast framleiðslu stuttkeðju fitusýra (SCFA), sem gegna mikilvægu hlutverki í eðlilegri starfsemi þarmaþekjunnar.
Uppruni & þróun
Abdom byggir á BalanceBiome™ Complex, sérhannaðri blöndu af gerjaðri íslenskri broddmjólk og sérvöldum örhjúpuðum góðgerlum sem þróuð hefur verið út frá rannsóknarvinnu og fagþekkingu Jörth á tengslum þarmaflóru, meltingar og almennrar heilsu.
Hvað er BalanceBiome™ Complex?
BalanceBiome™ Complex er sérhönnuð blanda af gerjaðri íslenskri broddmjólk og sérvöldum örhjúpuðum góðgerlum sem þróuð hefur verið út frá rannsóknarvinnu og fagþekkingu Jörth á tengslum þarmaflóru, meltingar og almennrar heilsu.
Formúlan byggir á samverkandi innihaldsefnum sem styðja náttúrulega starfsemi meltingarvegarins og daglegt jafnvægi líkamans.
Hvað er broddmjólk
Gerjuð íslensk broddmjólk (e. fermented bovine colostrum) byggir á fyrstu mjólkinni sem kýr framleiða eftir burð og er náttúrulega rík af lífvirkum efnum. Jörth notar gerjaða íslenska broddmjólk sem er unnin samkvæmt sérhannaðri aðferðafræði fyrirtækisins, þróaðri út frá rannsóknarvinnu og fagþekkingu á gerjun og vinnslu lífvirkra hráefna.
Gerjuð íslensk broddmjólk er lykilhluti BalanceBiome™, MucosaBiome™ og SignalBiome™ Complex og hefur verið valin fyrir samverkandi hlutverk sitt í formúlum sem þróaðar hafa verið með áherslu á meltingu, slímhúðir, taugakerfi og náttúrulegar varnir líkamans.
Hvað eru góðgerlar?
Góðgerlar (e. probiotics) eru lifandi örverur sem, þegar þeirra er neytt í nægilegu magni, geta haft jákvæð lífeðlisfræðileg áhrif á hýsilinn. Skilgreiningin byggir á viðmiðum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) og Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO).
Í formúlum Jörth eru góðgerlastofnarnir örhjúpaðir (e. microencapsulated) með það að markmiði að auka stöðugleika þeirra og vernda þá á leið um meltingarveginn. Örhjúpun er lykilþáttur í BalanceBiome™, SignalBiome™, RestoreBiome™ og FocusBiome™ Complex og endurspeglar áherslu Jörth á að sameina rannsóknarmiðaða þróun, gæði og háþróaða vinnslu lífvirkra hráefna.
Hvað er örhjúpun?
Örhjúpun (e. microencapsulation) er háþróuð vinnsluaðferð sem notuð er til að auka stöðugleika og vernda lífvirk innihaldsefni. Í formúlum Jörth er tækninni beitt á sérvalda góðgerla með það að markmiði að auka stöðugleika þeirra og vernda þá á leið um meltingarveginn.
Örhjúpun er lykilþáttur í BalanceBiome™, SignalBiome™, RestoreBiome™ og FocusBiome™ Complex og endurspeglar áherslu Jörth á rannsóknarmiðaða þróun og háþróaða vinnslu lífvirkra hráefna.
Rannsóknir benda til að örhjúpun geti aukið líkur á að góðgerlar þoli áhrif magasýru, meltingarensíma og gallsýra. Með því er unnt að hafa áhrif á hvenær og hvar hjúpurinn leysist upp eftir inntöku, sem getur stuðlað að því að fleiri góðgerlar nái til þarmanna þar sem þeir geta tekið þátt í samspili við þarmaumhverfið.
ÁBYRG NÝTING HRÁEFNA
Broddmjólk er framleidd fyrstu dagana eftir burð og er fyrst og fremst ætluð kálfinum. Aðeins þegar þörfum hans hefur verið fullnægt er afgangurinn nýttur til framleiðslu.
Jörth leggur áherslu á ábyrga nýtingu þessa verðmæta íslenska hráefnis sem annars færi að stórum hluta til spillis.
Sú nálgun endurspeglar hugmyndafræði fyrirtækisins um að sameina vísindi, gæði og virðingu fyrir náttúrunni í allri þróun og framleiðslu.
Samfélag Jörth
Umsagnir
"Ég hef prófað mismunandi tegundir af góðgerlum en aldrei fundið eins mikinn mun og eftir að ég fór að taka Abdom reglulega."
Anna Lára, 45 ára
"Ég er virkilega ánægð með árangurinn. Mér líður vel á Abdom og finn að það virkar fyrir mig. Eins finnst mér frábært að geta tekið inn hreinar íslenskar vörur með engum aukaefnum."
Sigurdís, 51 árs
"Abdom er frábært bætiefni sem virkar. Ég er ekki jafn útþaninn, þreytt ur og viðkvæmur í maganum. Gæti ekki mælt meira með."
Gunnar, 62 ára

