


Hvað gerir Focuz fyrir þig?
STYÐUR SKÝRA HUGSUN OG EINBEITINGU
Einbeiting og skýr hugsun byggja á nánu samspili taugakerfis, meltingar og eðlilegrar myndunar taugaboðefna.
Focuz er þróað með áherslu á að styðja skýra hugsun, einbeitingu og hugrænt jafnvægi sem hluta af daglegri rútínu.
STYÐUR HUGRÆNA STARFSEMI
Hugræn starfsemi hefur áhrif á meðal annars einbeitingu, minni og andlegt úthald í daglegu lífi.
Focuz byggir á samverkandi innihaldsefnum sem styðja eðlilega starfsemi taugakerfisins og hugræna virkni án örvandi efna.
STYÐUR TENGSL ÞARMA OG HEILA
Melting og taugakerfi starfa í nánu samspili í gegnum örveruflóru meltingarvegarins.
FocusBiome™ Complex hefur verið þróað með áherslu á þessi tengsl og styður náttúrulega starfsemi meltingar, taugakerfis og hugrænnar starfsemi.
STYÐUR ORKU OG DAGLEGT ÚTHALD
Andlegt úthald byggir á samspili taugakerfis, efnaskipta og daglegrar orku.
Focuz er þróað til reglulegrar notkunar og styður hugræna orku, einbeitingu og daglegt úthald án örvandi efna.
Uppruni & þróun
Focuz byggir á FocusBiome™ Complex, sérhannaðri blöndu af þurrgerjuðum íslenskum mysupróteinum, amínósýrum og sérvöldum örhjúpuðum góðgerlum sem þróuð hefur verið út frá rannsóknarvinnu og fagþekkingu Jörth á tengslum meltingar, taugakerfis og hugrænnar starfsemi.
Hvað er FocusBiome™ Complex?
FocusBiome™ Complex er sérhönnuð blanda af þurrgerjuðum íslenskum mysupróteinum, sérvöldum örhjúpuðum góðgerlum, amínósýrum og pantóþensýru (B5) sem þróuð hefur verið út frá rannsóknarvinnu og fagþekkingu Jörth á tengslum meltingar, taugakerfis og hugrænnar starfsemi.
Formúlan byggir á samverkandi innihaldsefnum sem styðja skýra hugsun, einbeitingu og hugrænt jafnvægi án örvandi efna.
Hvað eru þurrgerjuð mysuprótein?
Þurrgerjuð íslensk mysuprótein eru unnin úr íslenskri mysu með sérhæfðri þurrgerjunaraðferð sem er hluti af eigin þróunarvinnu Jörth.
Aðferðin varðveitir eiginleika hráefnisins og gerir það að lykilhluta FocusBiome™ og RestoreBiome™ Complex, þar sem það er valið fyrir gæði sín og samverkandi hlutverk innan formúlunnar.
Hvað er örhjúpun?
Örhjúpun (e. microencapsulation) er háþróuð vinnsluaðferð sem notuð er til að auka stöðugleika og vernda lífvirk innihaldsefni. Í formúlum Jörth er tækninni beitt á sérvalda góðgerla með það að markmiði að auka stöðugleika þeirra og vernda þá á leið um meltingarveginn.
Örhjúpun er lykilþáttur í BalanceBiome™, SignalBiome™, RestoreBiome™ og FocusBiome™ Complex og endurspeglar áherslu Jörth á rannsóknarmiðaða þróun og háþróaða vinnslu lífvirkra hráefna.
Rannsóknir benda til að örhjúpun geti aukið líkur á að góðgerlar þoli áhrif magasýru, meltingarensíma og gallsýra.
Með því er unnt að hafa áhrif á hvenær og hvar hjúpurinn leysist upp eftir inntöku, sem getur stuðlað að því að fleiri góðgerlar nái til þarmanna þar sem þeir geta tekið þátt í samspili við þarmaumhverfið.
Ábyrg nýting hráefna
Þurrgerjuð íslensk mysuprótein eru unnin úr íslenskri mysu sem fellur til við mjólkurframleiðslu á Íslandi. Með sérhannaðri vinnsluaðferð Jörth er verðmætt íslenskt hráefni nýtt á ábyrgan hátt og umbreytt í lífvirkan hluta FocusBiome™ og RestoreBiome™ Complex.
Þessi nálgun endurspeglar áherslu Jörth á ábyrga nýtingu íslenskra hráefna, rannsóknarmiðaða þróun og virðingu fyrir náttúrunni.
samfélag Jörth
Umsagnir
"Ég elska Focuz og get ekki hugsað mér vinnudag án þess!
Helga Vala, 34 ára
"Ég nota Focuz reglulega bæði til að fá betri einbeitingu og líka til að hafa meiri kraft til að takast á við andlegt og líkamlegt álag."
Bjarki, 41 árs
"Focuz hefur breytt öllu fyrir mig í náminu mínu. Mér finnst ég ekki missa athyglina eins og áður og það verður meiri ró í kollinum á mér."
Anna Stella, 23 ára
lausnir
SKÝRLEIKI
Focuz + Nerv
Þegar þú vilt skýra hugsun og einbeitingu.
Skýrleiki sameinar Nerv og Focuz í lausn sem þróuð hefur verið með áherslu á tengsl meltingar, taugakerfis og hugrænnar starfsemi.
Lausnin hentar þeim sem vilja styðja við skýra hugsun, einbeitingu og hugrænt jafnvægi án örvandi efna.
Formúlurnar eru hannaðar til að vinna saman og styðja hugræna starfsemi, einbeitingu og daglega vellíðan.

