Fara í yfirlit

Abdom – áfylling

15,990 ISK

Áfylling fyrir Abdom 1.0

Byggt á rannsóknum og fagþekkingu

Sérvalin náttúruleg hráefni

Endurvinnanlegar umbúðir

Pairs well with

Nánari lýsing

Abdom – stuðningur við meltingu og þarmaflóru
Abdom er íslenskt bætiefni þróað til að styðja við heilbrigða meltingarstarfsemi og jafnvægi í þarmaflóru.

Varan inniheldur blöndu sérvalinna, örhjúpaðra góðgerla ásamt gerjaðri íslenskri broddmjólk og er hönnuð til daglegrar notkunar.

Samsetning Abdom vinnur með náttúrulegum ferlum líkamans og er ætluð þeim sem vilja veita meltingarkerfinu reglulegan stuðning.

Af hverju skiptir meltingin máli?
Meltingarvegurinn gegnir lykilhlutverki í heilsu líkamans og hefur áhrif á upptöku næringarefna, ónæmiskerfi, taugakerfi og alla almenna líðan.
Stuðningur við meltingu getur því haft víðtæk áhrif á líkamlega og andlega heilsu.

Fyrir hverja hentar Abdom?

Abdom getur hentað fyrir þau sem:

  • Finna fyrir ójafnvægi í meltingu, svo sem uppþembu eða óþægindum.
  • Vilja styðja við heilbrigða þarmaflóru til lengri tíma.
  • Hafa upplifað meltingaróþægindi í tengslum við álag.

Leita að daglegum stuðningi við meltingarkerfið.

Með því að margnota glösin frá Jörth geymir þú bætiefnin þín við bestu mögulegu skilyrði.

Innihaldslýsing

Broddmjólk (milk), mjólkursýrugerlar (milk), míkróhjúpuð góðgerlablanda (milk), hylki (úr jurtaríknu). Inniheldur aðeins náttúruleg hráefni, engar erfðabreytingar, soja, sýklalyf, fylliefni eða aukaefni.

MagnCFU miðast við 2 hylki

Notkunarleiðbeiningar

Takið inn 1-2 hylki að morgni. Má taka á fastandi maga eða með mat. Drekkið vel af vatni með.

Gott er að byrja á einu hylki en má síðan auka í tvö hylki ef á þarf að halda.

Hvað gerir Abdom fyrir þig?

Styður meltingarveginn

Inniheldur þætti sem rannsóknir sýna að styrkja þarmaveggi og millifrumutengingar og stuðla að heilbrigðu gegndræpi þarma. Rannsóknir sýna að heilbrigt gegndræpi þarma dregur úr líkum á að bólgumyndandi þættir eins og fitufjölsykrur (LPS) og skaðlegar örverur komist frá meltingarvegi út í líkamann.

Styður þarmaflóruna

Sérvalin blanda góðgerla styður þarmaflóruna. Sýrð broddmjólkin inniheldur mjög lítið magn laktósa og hentar því flestum til inntöku, einnig þeim sem eru viðkvæmir fyrir laktósa. Rannsóknir sýna að heilbrigð þarmaflóra getur dregið úr óþolum og komið í veg fyrir óþægindi í meltingarvegi, dregið úr vindgangi, uppþembu og komið reglu á hægðir. Heilbrigð þarmaflóra eykur frásog og nýtingu næringarefna í meltingarvegi. Öflug þarmaflóra styður framleiðslu á B vítamínum og K vítamíni en það síðar nefnda hefur jákvæð áhrif á nýtingu kalks úr fæðunni.

Styður taugakerfið

Inniheldur sérvalda góðgerla sem samkvæmt rannsóknum hgeta haft jákvæð áhrif á heila og taugakerfi. Góðgerlarnir auka meðal annars nýmyndun á ýmsum taugaboðefnum og vellíðunarhormónum, svo sem GABA, serotóníni, dópamíni, noradrenalíni, melatóníni, acetýlkólíni og oxitócýni.

Styður ónæmiskerfið

Inniheldur lífvirka þætti úr broddmjólk og sérvalda góðgerla. Rannsóknir benda til að ákveðnir stofnar geti haft áhrif á ónæmissvörun og starfsemi meltingarvegar.

Ákveðnir góðgerlar í blöndunni tengjast framleiðslu stuttkeðju fitusýra (SCFA), sem gegna hlutverki í eðlilegri starfsemi þarmaþekjunnar.

Innihald og framleiðsla

Abdom inniheldur ýmis mikilvæg efni. Það sem gerir bætiefnið einstakt er sérhönnuð blanda þess af 19 míkróhjúpuðum góðgerlum og gerjaðri íslenskri broddmjólk.

Hvað er broddmjólk

Broddmjólk (e. colostrum) er fyrsta mjólkin sem spendýr mynda eftir burð og er náttúrulega rík af lífvirkum efnum.

Hún inniheldur m.a. ónæmisþætti, vaxtaþætti, bakteríuheftandi peptíð, núkleótíð, vítamín, steinefni og fitu — samsetningu sem hefur vakið áhuga rannsakenda og verið skoðuð í tengslum við ýmsa þætti heilsu, þar á meðal meltingarveg, ónæmissvörun og bólguferla.

Hvað eru góðgerlar?

Góðgerlar (e. probiotics) eru lifandi örverur sem, þegar þær eru teknar inn í nægilegu magni, geta haft lífeðlisfræðileg áhrif. Þessi skilgreining byggir á viðmiðum Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) og Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO).

Rannsóknir sýna að góðgerlar þolast almennt vel. Hins vegar lifa stofnar misjafnlega vel af ferðalagið í gegnum meltingarveginn. Í Abdom er notuð míkróhjúpun (e. microencapsulation) sem er hönnuð til að vernda innihaldsefnin á leið þeirra í gegnum meltingarkerfið.

Hvað þýðir þegar góðgerlar eru míkróhjúpaðir?

Míkróhjúpun (e. microencapsulation) er notuð til að bæta stöðugleika góðgerla á leið þeirra í gegnum meltingarveginn. Rannsóknir benda til að slík tækni geti aukið líkur á að hluti gerlanna lifi af áhrif magasýru, ensíma og gallsýra.

Með þessari aðferð er unnt að hafa áhrif á hvenær og hvar losun á sér stað eftir inntöku. Lífvænleiki gerlanna í þörmum er talinn skipta máli fyrir virkni þeirra og samspil við þarmaumhverfið.

Umbúðir

Jörth er þar sem náttúran og vísindin mætast. Við störfum með sjálfbærni að leiðarljósi og leggjum áherslu á að allir þættir í starfsemi okkar séu umhverfisvænir.

Við gerum ríkar kröfur til okkar sem og til okkar samstarfsaðila í umhverfismálum. Við notum umbúðir sem eru endurvinnanlegar og lágmörkum umhverfisspor okkar. Glös eru margnota og endurvinnanleg. Við hvetjum viðskiptavini okkar til að kaupa glas aðeins einu sinni og að panta svo áfyllingu.

Áfyllingar koma í einföldum, léttum og umhverfisvænum umbúðum sem eru endurvinnanlegar.

Með því að margnota glösin frá okkur geymir þú bætiefnin þín við bestu mögulegu skilyrði.

Afurðir úr ábyrgri framleiðslu

Þegar kýrin ber framleiðir hún broddmjólk handa kálfinum. Við söfnum broddmjólk mjólkurkúa, en kú framleiðir mun meira magn en kálfurinn getur nýtt. Eftir að kálfurinn hefur fengið það sem hann þarf þá söfnum við restinni sem hingað til hefur að mestu verið fargað (nema því litla sem nýtt hefur verið til að búa til ábrystir). Þannig erum við að draga úr „matarsóun“ og mengun og skapa verðmæti í staðinn.

Bætiefni sem virka