Broddmjólk er fyrsta mjólkin sem spendýr mynda eftir burð og er náttúrulega rík af lífvirkum efnum. Hún inniheldur m.a. ónæmisþætti, vaxtaþætti, bakteríuheftandi peptíð, núkleótíð, steinefni, vítamín og mjólkurfitu.
Eiginleikar broddmjólkur hafa verið rannsakaðir í tengslum við þarmaflóru, slímhúðarstarfsemi og ónæmissvörun. Lífvirk prótein á borð við lysozyme, lactóferrín og ovótransferrín hafa verið skoðuð fyrir hlutverk sitt í náttúrulegum varnarkerfum líkamans og í tengslum við bólguferla og oxunarálag.

