Immun – stuðningur við ónæmiskerfið

Immun er íslenskt bætiefni þróað til að styðja við eðlilega starfsemi ónæmiskerfisins.

Immun er íslenskt bætiefni þróað til að styðja við náttúrulegar varnir líkamans með blöndu sérvalinna lífvirkra þátta ásamt gerjaðri íslenskri broddmjólk.

Immun vinnur með náttúrulegum ferlum líkamans og er hannað til daglegrar notkunar.

Af hverju skiptir ónæmiskerfið máli?

Ónæmiskerfið gegnir lykilhlutverki í vernd líkamans og bregst stöðugt við álagi, sýklum og öðrum utanaðkomandi áhrifum.

Stuðningur við jafnvægi og virkni ónæmiskerfisins getur því verið mikilvægur þáttur í almennri heilsu og vellíðan.

Eðlileg starfsemi ónæmiskerfisins er háð fjölmörgum þáttum, þar á meðal næringarástandi, lífsstíl og hvíld.

Fyrir hverja hentar Immun?

Immun getur hentað fyrir þau sem:

  • Vilja styðja við eðlilega starfsemi ónæmiskerfisins.
  • Finna fyrir auknu álagi, þreytu eða endurteknum veikindum.
  • Finna fyrir auknu álagi eða þreytu.
  • Vilja veita líkamanum daglegan, mildan stuðning við varnir.
  • Leggja áherslu á forvarnir og heildræna nálgun á heilsu.

Verð

Immun í glerglasi (90 hylki): kr. 9.900

Immun í áflyllingarumbúðum (90 hylki): kr. 9.900

Innun áfylling í áskrift: 15% afsláttur og frí heimsending – kr. 8.400

Glerglas Jörth verndar gæði bætiefnanna og styður sjálfbærni.

Fyrstu kaupin fela í sér margnota glerglas, í framhaldinu er hægt að velja áfyllingu með minna kolefnisspori.

Leyfðu náttúrunni að græða þig.

Kaupa Immun Kaupa áfyllingu Immun áskrift

Hvað er broddmjólk?

Broddmjólk (e. colostrum) er fyrsta mjólkin sem spendýr mynda eftir burð og er náttúrulega rík af lífvirkum efnum.

Hún inniheldur m.a. ónæmisþætti, vaxtaþætti, bakteríuheftandi peptíð, núkleótíð, vítamín, steinefni og fitu — samsetningu sem hefur vakið áhuga rannsakenda og verið skoðuð í tengslum við ýmsa þætti heilsu, þar á meðal meltingarveg, ónæmissvörun og bólguferla.

Hvað er lysozyme?

Lysozyme er lífvirkt ensím sem finnst náttúrulega í ýmsum líkamsvessum, svo sem tárum og munnvatni. Það er hluti af náttúrulegum varnarkerfum líkamans og hefur verið rannsakað fyrir hlutverk sitt í samskiptum við bakteríur.

Lysozyme getur brotið niður ákveðna hluta frumuveggja baktería. Rannsóknir hafa einnig skoðað möguleg áhrif þess á ónæmissvörun og bólguferla.

Hvað er lactóferrín?

Lactóferrín er fjölvirkt prótein sem finnst meðal annars í broddmjólk og öðrum líkamsvessum. Það binst járni og getur þannig haft áhrif á aðgengi þess fyrir ákveðnar bakteríur.

Lactóferrín hefur verið rannsakað í tengslum við ónæmissvörun og bólguferla og er talið gegna hlutverki í náttúrulegum varnarkerfum líkamans.

Hvað er ovótransferrín?

Ovótransferrín er prótein sem finnst í eggjahvítu og tilheyrir transferrín-fjölskyldunni. Líkt og lactóferrín bindst það járni og hefur verið rannsakað í tengslum við samskipti við örverur.

Rannsóknir hafa einnig skoðað mögulegt hlutverk ovótransferríns í ónæmissvörun og bólguferlum, þar á meðal í tengslum við boðefni á borð við TNF-α og IL-6.

Hvað gerir Immun 1.1 fyrir þig?

Broddmjólk er fyrsta mjólkin sem spendýr mynda eftir burð og er náttúrulega rík af lífvirkum efnum. Hún inniheldur m.a. ónæmisþætti, vaxtaþætti, bakteríuheftandi peptíð, núkleótíð, steinefni, vítamín og mjólkurfitu.

Eiginleikar broddmjólkur hafa verið rannsakaðir í tengslum við þarmaflóru, slímhúðarstarfsemi og ónæmissvörun. Lífvirk prótein á borð við lysozyme, lactóferrín og ovótransferrín hafa verið skoðuð fyrir hlutverk sitt í náttúrulegum varnarkerfum líkamans og í tengslum við bólguferla og oxunarálag.

Immun 1.1 inniheldur blöndu af góðgerlum, gerjaðri broddmjólk og lífvirkum próteinum á borð við lysozyme, ovótransferrín og lactóferrín. Innihaldsefnin hafa verið rannsökuð í tengslum við þarmaflóru og náttúrulega starfsemi ónæmiskerfisins.

Þarmaheilbrigði er talið gegna mikilvægu hlutverki í ónæmissvörun líkamans. Lífvirk prótein úr broddmjólk hafa verið skoðuð fyrir samskipti sín við örverur og fyrir mögulegt hlutverk í bólguferlum.

Sínk stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins samkvæmt viðurkenndum heilsufullyrðingum.

Gerjuð broddmjólk inniheldur fjölbreytta lífvirka þætti sem hafa verið rannsakaðir í tengslum við ónæmissvörun og bólguferla. Gerjun getur haft áhrif á samsetningu og lífvirkni innihaldsefna.

Lífvirk prótein á borð við ovótransferrín og lysozyme hafa verið skoðuð fyrir samskipti sín við örverur og fyrir mögulegt hlutverk í bólguferlum og oxunarálagi.

Sínk stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins. A-vítamín stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins og viðhaldi eðlilegra slímhúða. Bíótín stuðlar að viðhaldi eðlilegra slímhúða.

Samsetning Immun byggir á faglegri þekkingu á lífvirkum efnum og þarma–ónæmis samspili.

Inniheldur sínk sem stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins, ásamt A-vítamíni og bíótíni sem stuðla að viðhaldi eðlilegra slímhúða samkvæmt viðurkenndum heilsufullyrðingum.

Inniheldur einnig fjölbreytt næringarefni á borð við kolvetni, prótín og fitu ásamt fituleysanlegum og vatnsleysanlegum vítamínum, steinefnum, ensímum og amínósýrum.

Immun inniheldur jafnframt lífvirka þætti úr broddmjólk, þar á meðal fásykrur og prótein sem hafa verið rannsökuð í tengslum við þarmaflóru og ónæmissvörun.

Inniheldur lífvirka þætti sem hafa verið rannsakaðir í tengslum við þarmaþekju og millifrumutengingar. Slíkir þættir geta haft áhrif á starfsemi þarmaslímhúðar og jafnvægi í gegndræpi þarma.

Heilbrigt gegndræpi þarma er talið skipta máli fyrir samskipti meltingarvegar og ónæmiskerfis, þar sem það tengist því hvernig ýmsir þættir úr þörmum hafa áhrif á lífeðlisfræðilega starfsemi líkamans.

Immun 1.1 byggir á samsetningu lífvirkra efna, vítamína, steinefna og góðgerla sem valin eru á grundvelli fagþekkingar á þarma–ónæmis samspili.

Formúlan sameinar gerjaða broddmjólk, lífvirk prótein úr eggjum og sérvalda góðgerla, ásamt vítamínum og steinefnum sem tengjast eðlilegri starfsemi ónæmiskerfis og slímhúða samkvæmt viðurkenndum heilsufullyrðingum.

Rannsóknir á hráefni, þ.e. broddmjólk, hafa verið framkvæmdar á MIBRC rannsóknarsetri við MassGeneral Hospital, Harvard Medical School.

Klínísk íhlutunarrannsókn stendur nú yfir hjá einstaklingum á aldrinum 50–70 ára þar sem þátttakendur taka inn gerjaða broddmjólk eða fæðubótarefnið Abdom. Þar eru áhrif inntöku á þarmaflóru, gegndræpi þarma og bólguþætti metin. Rannsóknin er hluti af SYMBIOSIS öndvegisrannsókn við Háskóla Íslands.

Ritrýndar greinar

Ásbjörnsdóttir, B. o.fl. (2023). Prophylactic Effect of Bovine Colostrum on Intestinal Microbiota and Behavior in Wild-Type and Zonulin Transgenic Mice. Biomedicines, 11(1), 91.
Lesa grein

Ásbjörnsdóttir, B. o.fl. (2023). Evaluating Prophylactic Effect of Bovine Colostrum on Intestinal Barrier Function in Zonulin Transgenic Mice: A Transcriptomic Study. International Journal of Molecular Sciences, 24(19), 14730.
Lesa grein

Umbúðir

Jörth er þar sem náttúran og vísindin mætast. Við störfum með sjálfbærni að leiðarljósi og leggjum áherslu á að allir þættir í starfsemi okkar séu umhverfisvænir.

Við gerum ríkar kröfur til okkar sem og til okkar samstarfsaðila í umhverfismálum. Við notum umbúðir sem eru endurvinnanlegar og lágmörkum umhverfisspor okkar. Glös eru margnota og endurvinnanleg. Við hvetjum viðskiptavini okkar til að kaupa glas aðeins einu sinni og að panta svo áfyllingu.

Áfyllingar koma í einföldum, léttum og umhverfisvænum umbúðum sem eru endurvinnanlegar.

Með því að margnota glösin frá okkur geymir þú bætiefnin þín við bestu mögulegu skilyrði.

Immun er án eftirtalinna ofnæmisvalda og aukaefna sem skilgreind eru af Matvæla- og öryggisstofnun Evrópu (EFSA).

Spurt og Svarað

Til að fá sem mest út úr Immun og hámarka virkni þess er mikilvægt að taka það rétt.

Daglega

  • Taktu Immun daglega, jafnvel þótt þú finnir ekki fyrir lasleika né álagi. Þannig getur þú byggt upp varnir ónæmiskerfisins og viðhaldið stöðugri verkun Immun.

Taktu inn með mat

  • Immun inniheldur fituleysanlegt A-vítamín (retínýl pálmitat) sem best er að taka inn með máltíð sem inniheldur smá fitu. Þetta hjálpar líkamanum að nýta vítamínið betur.
  • Tryggir einnig betri upptöku næringarefna eins og á sínki og bíótíni.

Morgun, síðdegi, kvöld

  • Það er mikilvægt að taka Immun inn þrisvar sinnum á dag á sama tíma, daglega, til að viðhalda stöðugri virkni

Drekktu vatn með

  • Drekktu glas af vatni þegar þú tekur bætiefnið þar sem það hjálpar til við frásog og nýtingu efna. Það er mikilvægt að fylgja ráðlögðum dagskammti fyrir hámarksárangur.

Ef þú vilt styrkja ónæmiskerfið, bæta samsetningu þarmaflórunnar og draga úr sýkingum og bólgum.

Styrkir ónæmiskerfið

  • Immun inniheldur efni eins og broddmjólk, lysozyme, og ovótransferrín sem styðja við og styrkja ónæmiskerfið. Broddmjólk er þekkt fyrir að vera einstaklega næringarrík og inniheldur mikilvæga ónæmisþætti sem geta verndað líkamann gegn sýkingum og sjúkdómum.

Dregur úr bólgum og bætir samsetningu þarmaflórunnar

  • Immun inniheldur efni með bólgueyðandi og örverueyðandi eiginleika eins og sínk, A-vítamín, bíótín ásamt góðgerlum sem bæta þarmaflóruna. Með því að styðja við heilbrigða þarmaflóru getur Immun dregið úr bólgum í þörmunum sem hefur jákvæð áhrif á heilsu og vellíðan.

Vörn gegn sýkingum

  • Broddmjólk, lysozyme og ovótransferrín hafa öflug áhrif gegn sýklum, veirum og sveppum. Ef þú ert að veikjast reglulega eða vilt forðast sýkingar á tímum þar sem ónæmiskerfið er undir álagi gæti Immun verið gagnlegt til að styrkja ónæmiskerfið og styðja við betri varnir gegn sýkingum.

Styrkir húð og hár

  • Bíótín og A-vítamín í Immun eru ekki bara góð fyrir ónæmiskerfið heldur einnig fyrir húð, hár og neglur. Ef þú vilt bæta útlit húðarinnar og heilsu hársins getur Immun haft jákvæð áhrif.

Náttúruleg og lífvirk efni

  • Immun er samsett úr náttúrulegum, lífvirkum efnum eins og broddmjólk sem er ofurfæða sem inniheldur fjölbreytt ónæmiseflandi efni. Það inniheldur engin erfðabreytt efni, fylliefni eða skaðleg aukaefni, sem gerir það að góðum valkosti fyrir þá sem vilja stuðla að betri heilsu á náttúrulegan hátt.

Þú ættir að taka Immun ef þú vilt styrkja ónæmiskerfið, draga úr bólgum, vernda þig gegn sýkingum, bæta heilsu húðar og hárs, og styðja við heilbrigða þarmaflóru. Immun er náttúrulegt bætiefni með öflugum lífvirkum efnum sem geta stuðlað að betri heilsu og vellíðan.

Áhrif af inntöku á Immun eru breytileg eftir einstaklingum og ástandi ónæmiskerfisins. Almennt máttu búist við að finna mun eftir 2-4 vikur af reglulegri notkun.

Ónæmiskerfið

  • Ef ónæmiskerfið er veikt eða undir álagi getur það tekið lengri tíma að byggja það upp, en fyrstu merki geta verið minni veikindi eða þú veikist sjaldnar, eða þú ert fljótari að ná þér eftir minniháttar sýkingar.

Þarmaflóran

  • Immun inniheldur efni sem stuðla að bættri samsetningu á þarmaflóru. Ef þarmaflóran er í ójafnvægi getur það tekið 3-4 vikur að leiðrétta ójafnvægið og þannig finna bætta meltingu og öflurgri heilsu í kjölfarið.

Regluleg notkun

  • Mikilvægt er að taka Immun daglega til að ná fram stöðugum áhrifum. Langvarandi notkun (8-12 vikur) getur stuðlað að sterkari áhrifum gegn bólgu, almennt á ónæmiskerfi, almenna heilsu og vellíðan.

Til að hámarka áhrif Immun er gott að taka það reglulega í að minnsta kosti einn til tvo mánuði og fylgjast með breytingum á heilsu, orku og úthaldi, meltingu og tíðni minniháttar sýkinga eða veikinda.

Þó að Immun sé náttúrulegt bætiefni er mikilvægt að hafa í huga að það inniheldur lífvirk efni eins og broddmjólk, lysozyme, ovótransferrín, vítamín og steinefni sem gætu haft áhrif á hvernig ákveðin lyf virka í líkamanum, sérstaklega ónæmisbælandi lyf. Við ráðgleggjum ekki inntöku á Immun nema í samráði við lækni í slíkum tilfellum.

Ef þú ert þunguð eða með barn á brjósti er mikilvægt að fara varlega varðandi inntöku á bætiefnum, jafnvel náttúrulegum efnum eins og Immun. Sem dæmi má nefna að of mikil neysla á A-vítamíni á meðgöngu getur verið skaðleg fyrir fóstrið. Magn A-vitamíns í Immun er innan viðmiðunarmarka en ávalt gott að ráðfæra sig við lækni til að tryggja rétt magn af vítamínum í heild sinni.

Besti staðurinn er þar sem þú manst eftir að taka bætiefnið inn á hverjum degi. Fyrir suma er það í eldhúsinu en öðrum hentar að hafa glasið á baðherberginu eða jafnvel í bílnum. Glösin eru sérstaklega hönnuð til að varðveita gæði vörunnar sem lengst, lágmarka ljós og hita og hámarka ákveðna geisla sem lengja líftíma vörunnar. Ekki þarf að geyma Immun í kæli.

ATHUGIÐ að geyma aldrei bætiefni þar sem börn ná eða sjá til.

Þegar kýrin ber framleiðir hún broddmjólk handa kálfinum. Við söfnum broddmjólk mjólkurkúa, en kú framleiðir mun meira magn en kálfurinn getur nýtt. Eftir að kálfurinn hefur fengið það sem hann þarf þá söfnum við restinni sem hingað til hefur að mestu verið fargað (nema því litla sem nýtt hefur verið til að búa til ábrystir). Þannig erum við að draga úr „matarsóun“ og mengun og skapa verðmæti í staðinn.

Áfyllingar eru væntanlegar! Fylgstu með, skráðu þig á póstlistann og fylgdu okkur á samfélagsmiðlum.

Vörulína Jörth stækkar ört og samanstendur nú af fimm öflugum bætiefnum.

Abdom 1.0
Nerv 1.2
Dorm 2.0
Focuz 2.1

Kæri viðskiptavinur,

Við hjá Jörth leggjum mikla áherslu á að veita þér bestu mögulegu þjónustu og upplifun. Við erum þakklát fyrir traustið sem þú, sem viðskiptavinur, hefur sýnt okkur og við myndum kunna mjög vel að meta ef þú gætir tekið stund og deilt reynslu þinni með öðrum.

Þínar umsagnir eru verðmætar fyrir okkur, ekki aðeins til að bæta þjónustu okkar, heldur einnig til að hjálpa öðrum viðskiptavinum að taka upplýsta ákvörðun.

Ef þú hefur nokkrar mínútur til aflögu, vinsamlegast smellið á eftirfarandi tengil til að skrifa umsögn á Google um upplifun þína á Jörth

Við þökkum þér fyrirfram fyrir tímann og umsögnina.

Með bestu kveðju,

Birna og Jörth teymið