Fara í yfirlit
Nerv – áfylling
Nerv – áfylling

Nerv – áfylling

13,900 ISK

Nerv styður við eðlilega starfsemi tauga- og meltingarkerfisins. Þróað út frá rannsóknarvinnu og fagþekkingu Jörth á tengslum meltingar, taugakerfis og almennrar vellíðanar.

Nerv inniheldur SignalBiome™ Complex, sérhannaða blöndu af sérvöldum góðgerlum, örhjúpuðu butyrate og gerjaðri íslenskri broddmjólk sem þróuð hefur verið með áherslu á tengsl meltingar, taugakerfis og almennrar vellíðanar.

Taugakerfið gegnir mikilvægu hlutverki í því hvernig líkaminn bregst við álagi, streitu og daglegu áreiti. Nerv er ætlað þeim sem vilja styðja við jafnvægi, einbeitingu og innri ró í daglegu lífi.

Nerv áfylling inniheldur 60 hylki og er ætluð til áfyllingar í Nerv glerglasið. Áfyllingarumbúðirnar eru léttar og endurvinnanlegar og draga úr umbúðanotkun án þess að skerða gæði eða öryggi formúlunnar.

Byggt á rannsóknum og fagþekkingu

Sérvalin náttúruleg hráefni

Endurvinnanlegar umbúðir

Pairs well with

Nánari lýsing

Nerv – stuðningur við taugakerfið og tengsl þess við meltingarveginn

Nerv er íslenskt bætiefni þróað með áherslu á samspil meltingar, örveruflóru þarmanna og taugakerfis.

Formúlan byggir á SignalBiome™ Complex, sérhannaðri blöndu af örhúpuðu bútýrati, gerjaðri íslenskri broddmjólk, sérvöldum Bifidobacterium-góðgerlastofnum og B-vítamínum.

Formúlan er þróuð með áherslu á eðlilega starfsemi taugakerfisins og tengsl þess við meltingarveginn.

Áfyllingin inniheldur sömu Nerv-formúlu og fæst í glerglasinu og er ætluð til áfyllingar í margnota Nerv glerglasið.

Áfyllingin inniheldur sömu Abdom-formúlu og fæst í glerglasinu og er ætluð til áfyllingar í margnota Abdom glerglasið.

Virk innihaldsefni

SignalBiome™ Complex:

  • Örhjúpað bútýrat (250 mg)
  • Bifidobacterium-góðgerlastofnar (100 mg)
  • Gerjuð íslensk broddmjólk (220 mg)
  • B3-vítamín (níasínamíð) (16 mg)
  • B1-vítamín (þíamín) (1.1 mg)
  • Bíótín (B7-vítamín) (50 μg)
  • 20 milljarðar lifandi góðgerla (CFU) í dagskammti (2 hylki)
Notkun

Takið 2 hylki daglega með vatni.

Áfyllingin inniheldur 60 hylki (30 daga skammt).