Go with your gut
Ég hef í tæpa tvo áratugi byggt upp sérþekkingu á þarmaflórunn og á tengslum hennar við heilsu bæði andlega og líkamlega. Á þeirri vegferð hef ég stundað rannsóknir og nám við háskóla hérlendis og erlendis.
Á þessum tíma hef ég verið með fyrirlestra, fræðslu og persónulega ráðgjöf. Endurgjöfin sem ég fæ í gegnum þau samskipti er eitt af því sem viðheldur ástríðu minni fyrir þarmaflórunni.
Vörur Jörth hafa fótfestu í vísindum og ég legg mikla áherslu á fræðslu. Á þessari síðu er að finna greinar sem ég hef skrifað um þarmaflóruna og meltingarveginn út frá ýmsum sjónarhornum.
Ég vona að þessar greinar og annar fróðleikur á vegum Jörth verði þér stuðningur á þinni vegferð til enn betri heilsu og lífsgæða.
Go with your gut,